Logo Sólstafa
Logo Sólstafa
Hafist hefur vinna við vefsíðu Sólstafa systursamtök Stígamóta á vestfjörðum. Er þetta verkefni unnið eingöngu til styrktar þessum nýlega stofnuðu samtaka hér fyrir vestan. Það er starfsfólki Snerpu mikil ánægja að geta lagt þessu málefni lið á þennan hátt því svona samtök eiga heima á hverjum stað. Mun solstafir.is verða sett upp í Snerpil vefumsjón og hýst á vefþjónum Snerpu og verður engu til sparað.

Nýtt logo samtakanna var hannað og samþykkt af stjórn Sólstafa í vikunni og fær hér að fljóta með mynd a logoinu. Endilega smellið á myndina ef þið viljið sjá stærri útgáfu.