Vefhönnun

Vefsíða er fyrst og fremst markaðstól. Vefsíðan er upplýsingarveita sem er opin 24/7 allt árið um kring. Hönnun þarf að vera vel ígrunduð og vefsíðan sett upp til að ná sem best til markhóps. Snerpa býður upp á allsherjar hönnun og útsettningu á vefsíðum. Meðal starfsfólks okkar er menntaður margmiðlunarhönnuður sem getur gefið góð ráð í sambandi við hönnun og framsetningu á efni. Snerpa hefur svo yfir að ráða forriturum sem kemur svo lausnum okkar fram þannig að þær mæti þínum kröfum og einnig viðskiptavina þinna.
Góð vefsíða þarf
  • Útlit sem höfðar til markhóps
  • Útlit sem endurspeglar fyrirtæki/rekstur
  • Aðgengilegt efni
  • Að vera auðvelt að rata um
  • Að virka eins í öllum vöfrum (Internet Explorer, Firefox, Safari)

Vanti þig eða þínum rekstri vefsíðu þá vinsamlegast hafðu samband og við leiðum þig réttu leiðina í gegnum allt ferlið, allt frá hugmynd að árangursríkri vefsíðu !

Grafísk hönnun

Er kominn tími á nýtt logo eða nýja litasamsetningu fyrir fyrirtækið ? Vantar þig einhverskonar grafík fyrir vefinn eða fyrir auglýsingar ?
Við hönnum
  • Logo
  • Vefsíðu útlit
  • Litasamsetningar
  • Alla allmenna grafík

Skoðaðu grafík eftir okkur hér.

Vertu í sambandi og sjáum hvað hægt er að gera fyrir þig.

Innrakerfi

Mikið af fyrirtækjum í dag notast við einhverskonar innanhússkerfi til að halda utan um sín mál. Snerpa hefur hannað og þróað innrakerfi sem er miðað við rekstur minni/meðalstórra fyrirtækja. Innan þessa kerfis eru margir möguleikar og stendur val á milli þeirra undir þér. Þinn rekstur er þarfagreindur og er svo kerfið sniðið að þínum rekstri og þörfum.
Möguleikar innrakerfis
  • Viðskiptamannalisti
  • Starfsmannakerfi
  • Verkbókhald
  • Tilkynningar
  • Skilaboð milli starfsmanna
  • Getur tengst með internettengingu
  • Sérþarfir

Ef að þú hefur þörf á að skipuleggja reksturinn betur og koma öllu undir sama hatt, hafðu þá samband og við reynum að vinna að sem bestri lausn fyrir þig.

Hýsing

Snerpa býður upp á að hýsa veflausnir á viðráðanlegu verði. Allar okkar hýsingar fara fram á vönduðum netþjónum sem eru vaktaðir allann sólahringinn. Netþjónarnir eru staðsettir í sérbyggðum vélasal.

Öryggi á gögnum viðskiptavina okkar er mjög áríðandi í okkar augum og eru tekin afrit að öllum gögnum reglulega.

Verð má sjá á vef Snerpu.

Hafðu samband og fáðu meiri upplýsingar.