Ómar Már Jónsson

Ómar Már Jónsson
Ómar Már Jónsson
Vefsíða: Súðavík.is
Súðavíkurhreppur hafði stefnt að því að endurbæta síðuna um tíma og unnið var að því undafarið ár að finna rétta stjórnkerfið sem myndi gera umsjón heimasíðunnar sem einfaldasta og þægilegasta. T.d. þyrfti að vera auðvelt að setja inn og taka út efni og ætti vefumsjónarmanneskja að geta með einföldum hætti uppfært síðuna án vandkvæða þegar þess gerist þörf.

Eftir að hafa skoðað ýmsa möguleika ákvað Súðavíkurhreppur að fá Snerpu til verksins, en leist þeim best á stjórnkerfi sem Snerpa hefur hannað frá grunni og hefur verið að gefa góða raun. „Það er ánægjulegt frá því að segja að snerpa starfsmanna Snerpu var til fyrirmyndar hvort sem var við beiðnum um breytingar eða aðstoð færslu gagna eða annað og að mínu viti standast þeir því á allan hátt samanburð við þá sem taldir eru með þeim fremstu í heimasíðugerð á landinu. Til að undirstrika það, leið aðeins einn og hálfur mánuður frá því að gerður var samningur við Snerpu um hönnun og þjónustu við gerð nýrrar heimasíðu og þar til þeirra þætti var meira og minna lokið við útlit og stjórnkerfi síðunnar.“ Ómar segir ánægjulegt að geta verslað í heimabyggð og fá jafnframt það besta sem völ er á.

Rúnar Óli Karlsson

Rúnar Óli Karlsson
Rúnar Óli Karlsson
Vefsíða: Boreaadventures.com
Þegar við stofnuðum okkar fyrirtæki, var ákveðið að leggja mikla áherslu á góða heimasíðu sem kæmi myndefni og texta vel til skila ásamt því að vera vel forrituð m.t.t. leitarvéla. Við skoðuðum nokkur kerfi en flest voru annaðhvort of dýr eða takmörkuð af einhverju leyti. Ástæðan fyrir því að við völdum Snerpil er sú að það innihélt alla þessa eiginleika auk þess að við þekkjum starfsfólkið og treystum því til að skila góðu verki.
Snerpa hugsaði vel um okkur frá fyrstu mínútu. Ekkert var ómögulegt og starfsmenn þess tóku tillit til allra okkar athugasemda og leystu úr þeim. Það er okkar reynsla að veffyrirtæki eru oft þeim annmörkum háð að þar er yfirleitt annaðhvort góðir forritarar eða góðir hönnuðir. Sjaldan bæði. Hjá Snerpu fengum við góða forritunarþjónustu og faglega hönnun sem við höfum fengið mikið lof fyrir.
Snerpill er mjög auðveldur í notkun og þægilegt er að hlaða inn myndum og myndatexta á fleiri en einu tungumáli. Eins er auðvelt að tengja skjöl og fleira sem máli skiptir. Viðmótið er snyrtilegt og einfalt og það er líka þægilegt að vinna allar breytingar beint inn á vefnum en ekki í sér glugga.
Við höfum aldrei upplifað nein vandræði með kerfið og vefurinn hefur aðeins einu sinni verið niðri vegna bilunar. Það var á fyrstu dögunum og því var kippt í lag á fimm mínútum.