Ómar Már Jónsson
Vefsíða: Súðavík.is
Súðavíkurhreppur hafði stefnt að því að endurbæta síðuna um tíma og unnið var að því undafarið ár að finna rétta stjórnkerfið sem myndi gera umsjón heimasíðunnar sem einfaldasta og þægilegasta. T.d. þyrfti að vera auðvelt að setja inn og taka út efni og ætti vefumsjónarmanneskja að geta með einföldum hætti uppfært síðuna án vandkvæða þegar þess gerist þörf.Eftir að hafa skoðað ýmsa möguleika ákvað Súðavíkurhreppur að fá Snerpu til verksins, en leist þeim best á stjórnkerfi sem Snerpa hefur hannað frá grunni og hefur verið að gefa góða raun. „Það er ánægjulegt frá því að segja að snerpa starfsmanna Snerpu var til fyrirmyndar hvort sem var við beiðnum um breytingar eða aðstoð færslu gagna eða annað og að mínu viti standast þeir því á allan hátt samanburð við þá sem taldir eru með þeim fremstu í heimasíðugerð á landinu. Til að undirstrika það, leið aðeins einn og hálfur mánuður frá því að gerður var samningur við Snerpu um hönnun og þjónustu við gerð nýrrar heimasíðu og þar til þeirra þætti var meira og minna lokið við útlit og stjórnkerfi síðunnar.“ Ómar segir ánægjulegt að geta verslað í heimabyggð og fá jafnframt það besta sem völ er á.
