Ísfugl

Vefur Ísfugls
Vefur Ísfugls
Ísfugl ehf. rekur sláturhús, kjötvinnslu og dreifingarstöð fyrir afurðir alifugla. Á síðu Ísfugls má finna allar helstu upplýsingar um afurðir félagsins auk girnilegra uppskrifta.

Skoða isfugl.is

Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf

Vefur Hraðfrystihúsins-Gunnvarar hf
Vefur Hraðfrystihúsins-Gunnvarar hf
Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf er stærsta sjávarútvegsfyrirtækið á Vestfjörðum og hefur verið starfrækt síðan 1941. Á vefnum er að finna allar helstu upplýsingar um fyrirtækið ásamt því að hægt er að senda atvinnuumsókn í gegnum rafrænt form. Starfsmannafélag HG er einnig með aðsetur þarna og má þar nálgast fréttir af starfi þess ásamt myndaalbúmum. Síðan er bæði á ensku og íslensku.

Skoða frosti.is

Stúdíó Dan

Vefur Stúdíó Dan
Vefur Stúdíó Dan
Stúdíó Dan hefur verið fjölsótt af íbúum Ísafjarðarbæjar allt frá opnun þess árið 1987. Nú á haustmánuðum 2008 var allt húsnæði líkamsræktarstöðvarinnar tekið í gegn og velflestum tækjunum skipt út. Í tilefni þess þá var einnig opnuð ný vefsíða þar sem nálgast má allar helstu upplýsingar er varða Stúdíóið, s.s. verðlista og upplýsingar um námskeið sem eru í gangi.

Skoða studiodan.is

Freydís sf.

Vefur Freydísar sf.
Vefur Freydísar sf.
Freydís sf. er ferðaþjónstufyrirtæki sem sérhæfir sig í ferðum til Hornstranda auk þess sem það býður upp á gistiaðstöðu í Bolungarvík á Ströndum.

Skoða freydis.is

Kaffi Edinborg

Vefur Kaffi Edinborgar
Vefur Kaffi Edinborgar
Kaffi Edinborg er í hjarta Ísafjarðar, nánar tiltekið í Edinborgarhúsinu sem er eitt af þremur menningarhúsum bæjarins. Boðið er upp á fjölbreytta þjónustu sem er sniðin að hverjum og einum viðskiptavin.

Verkalýðsfélag Vestfirðinga

Vefur Verkalýðsfélags Vestfjarða
Vefur Verkalýðsfélags Vestfjarða
Á vefsíðu Verkalýðsfélags Vestfirðinga má nálgast fréttir og ýmiskonar upplýsingar um kjaramál félagsmanna.

Skoða verkvest.is

Litli Hjalli

Vefur Litla Hjalla
Vefur Litla Hjalla
Vefur þessi er rekinn af Jóni G. Guðjónssyni í Litlu-Ávík og er tilgangur síðunnar fréttaflutningur úr Árneshreppi, efni tengt Árneshreppi, og aðrar fréttir eftir atvikum. Fréttaritari vefsins er Hrafn Jökulsson.

Skoða litlihjalli.it.is

Menningaráð Vestfjarða

Vefur Menningaráðs Vestfjarða
Vefur Menningaráðs Vestfjarða
Menningarráð Vestfjarða er samstarfsvettvangur sveitarfélaga á Vestfjörðum um menningarmál og hefur meðal annars það hlutverk að samræma aðgerðir á sviði menningarmála á starfssvæðinu, standa fyrir öflugu þróunarstarfi, úthluta fjármagni til menningarverkefna á Vestfjörðum samkvæmt samningi ríkis og sveitarfélaga og hafa eftirlit með framkvæmd þess samnings.

Skoða vestfirskmenning.is

Brunavarnir Árnessýslu

Vefur Babubabu
Vefur Babubabu
Babubabu.is er vefsíða Brunavarna Árnessýslu. Síðunni er ætlað að vera til upplýsinga og fróðleiks fyrir slökkviliðsmenn og almenning, og er þar meðal annars að finna upplýsingar um starfsemi liðsins, fréttir og víðtækt myndasafn.

Skoða babubabu.is

Ferðamálasamtök Vestfjarða

Vefur Ferðamálasamtaka Vestfjarða
Vefur Ferðamálasamtaka Vestfjarða
Ferðamálasamtök Vestfjarða eru samtök ferðaþjónustuaðila á Vestfjörðum. Á þessum vef er að finna upplýsingar um aðildarfélaga, gagnlegar ábendingar og tilkynningar um málefni ferðaþjónustunnar á Vestfjörðum.

Skoða vestfirskferdamal.is

Sjóferðir

Vefur Sjóferða
Vefur Sjóferða
Nú nýverið hafa Sjóferðir ehf bæst við í kúnnahóp Snerpills. Var síðan endurbætt að einhverjum hluta, en Sjóferðir höfðu góðan vef fyrir sem var hannaður af Snerpu á sínum tíma. Var hún þá í gömlu kerfi sem gerði allar uppfærslur frekar flóknar. Var eindreigin ósk Sjóferða að komast í kerfi þar sem þau höfðu sjálf fullkomið vald yfir öllu efni vefsins og völdu þau Snerpil vefumsjón til verksins. Á vefnum má finna allar upplýsingar um fyrirtækið og þjónustu þeirra.

Skoða sjoferdir.is

Vestfjarðaakademían

Vefur Vestfjarðaakademíunnar
Vefur Vestfjarðaakademíunnar
Vestfjarða-akademían er félag fólks með framhaldsmenntun á háskólastigi sem hug hefur á að stunda vísindarannsóknir eða fræðistörf á borð við ritstörf eða kennslu á Vestfjörðum. Tilgangur félagsins er að vera aflvaki fræðilegra rannsókna og kennslu á háskólastigi. Vefurinn heldur um allar helstu upplýsingar um Vestfjarða-akademíuna.

Skoða vestakademia.is

Háskólasetur Vestfjarða

Vefur Háskólaseturs Vestfjarða
Vefur Háskólaseturs Vestfjarða
Háskólasetrið var á höttunum eftir auðveldri vefumsjón fyrir sinn vef hsvest.is. Eftir skoðun á Snerpil var ákveðið að hefjast handa með vefdeild okkar. Á vefnum, sem er mjög efnismikill, má finna allar námsleiðir Háskólaseturins ásamt fjölmögu öðru frá starfsemi skólans.
Hér má lesa tilkynningu frá Háskólasetri og Snerpu:
"Háskólasetur Vestfjarða og Snerpa skrifa undir samstarfssamning

Tölvufyrirtækið Snerpa á Ísafirði hefur nú alfarið tekið að sér umsjón vefmála Háskólaseturs Vestfjarða. Peter Weiss, forstöðumaður Háskólaseturs, og Matthildur Helgadóttir, framkvæmdastjóri Snerpu, skrifuðu undir samning þar að lútandi nú í morgunn. Ágúst Atlason, margmiðlunarhönnuður hjá Snerpu, vinnur þessa dagana að hönnun nýrrar vefsíðu fyrir Háskólasetrið. Ákveðið var s.l. vor að fara út í algjöra endurskoðun á vefsíðu setursins þar sem nú fara í hönd miklar breytingar á starfseminni og því nauðsynlegt að endurhanna síðuna og laga hana að núverandi þörfum og varð vefumsjónarkerfið Snerpill fyrir valinu, en kerfið er hannað af Snerpumönnum og hefur reynst mjög vel."


Skoða hsvest.is

Skutull

Vefur Skutuls
Vefur Skutuls
Skutull.is er Vestfirskur fréttavefur. Þessi vefur sýnir það og sannar hversu hentugur Snerpill er til rekstrar á vef sem er mikið uppfærður og með góða umferð. Á skutull.is kennir margra grasa og má þar nefna að þeir nota auglýsingakerfi Snerpils á árangursríkann hátt. Þarna er einnig RSS lesarinn í fullum gangi og les hann blogg og annað efni af öðrum vefum víðs vegar að. Það er hlutafélagir Rauðir pennar ehf sem reka skutull.is.

Skoða skutull.is

Leikn

Vefur Leikn
Vefur Leikn
Leikn er sameiginlegur vettvangur aðila í fullorðinsfræðslu á Íslandi. Vefurinn er tvískiptur, annarsvegar eru allar upplýsingar um félagið og hinsvegar er þar læstur partur fyrir félagsaðila Leikn. Leikn.is er bæði á íslensku og ensku.

Skoða leikn.is

Hárkompaní

Vefsíða Hárkompaní
Vefsíða Hárkompaní
Hárkompaní er hárgreiðslustofa sem er rekin á Ísafirði. Vefurinn inniheldur allar helstu upplýsingar um fyrirtækið og má þar líka finna gott kort af staðsetningu þess. Á vefnum eru upplýsingar um alla starfsmenn og eru fréttir/tilkynningar skrifaðar af og til. Á vefnum er líka skemmtilegt myndaalbúm þar sem má finna hinar ýmsu hárgreiðslur og klippingar framkvæmdar af hárgreiðlumeisturum Hárkompaní.

Skoða harkompani.is

Raggagarður

Vefsíða Raggagarðs
Vefsíða Raggagarðs
Fjölskyldugarðurinn Raggagarður í Súðavík er verkefni Vilborgar Arnarsdóttur, en hún missti son sinn í bílslysi þann 19. ágúst 2001, þá aðeins 17 ára gamall. Innihald síðunnar er af ýmsum toga og ber þar helst að nefna upplýsingar um öll leiktækin og hver gaf þau, sögu Raggagarðs og myndir frá starfi og leik. Vefsíðan er á íslensku og ensku.

Skoða raggagardur.is

Vesturbyggð

Vefsíða Vesturbyggðar
Vefsíða Vesturbyggðar
Sveitafélagið Vesturbyggð hefur verið með í hönnun vef hjá okkur og kennir þar ýmissa nýjunga frá eldri vef þeirra. Sett hefur verið upp atburðadagatal til að skrá alla helstu atburði líðandi stundar. Einnig verður sú nýbreytni á nýja vefnum að allir bæjarfulltrúar geta núna bloggað um störf sín og fleira. Skapar þetta ákveðna nálgun við kjósendur í Vesturbyggð. Vefurinn státar af góðu myndaalbúmi frá lífinu á svæðinu. Stefnan hjá Vesturbyggð er að halda úti lifandi og skemmtilegum bæjarvef og miðað við áhugann þar á bæ, á það eftir að takast vel.

Skoða vesturbyggd.is

Sjá frétt á bb.is

Diva Snyrtistofa

Vefsíða Divu Snyrtistofu
Vefsíða Divu Snyrtistofu
Diva snyrtistofa hugsar til framtíðar og óskaði eftir nýjum vef til bættrar þjónustu fyrir sína viðskiptavini. Síðan er létt og skemmtileg með miklum fróðleik um starfsemi og þjónustu snyrtistofunnar. Þar má líka finna verð fyrir alla þjónustu. Á vefnum geta viðskiptavinir pantað tíma í snyrtingu og er þetta annar vefurinn á stuttum tíma sem tekur pöntunarkerfi Snerpils upp. Tímapöntunarkerfið er mjög auðvelt í notkun og á það vonandi eftir að auka þjónustustig snyrtistofunnar til muna.

Sjá frétt á bb.is

Gistihúsið Við fjörðinn

Vefsíða Gistihússins Við fjörðinn
Vefsíða Gistihússins Við fjörðinn
Sirrý og Finni á Þingeyri reka og eiga Gisthúsið Við fjörðinn á þingeyri. Nú nýlega óskuðu þau eftir að endurhannað yrði vefsvæði þeirra og tók Snerpa vel í það og skellti sér í málið. Hér er svo útkoman og kennir þarna margra grasa eins og sagt er. Á vefsíðunni má finna allar upplýsingar um gistingu, veitingar og verð fyrir þjónustuna. Staðsetningu gistihússins eru gerð skil og einnig stutt brot úr sögu Þingeyrar. Myndir eiga stórann þátt í hönnun síðunnar og er vel hægt að gera sér grein fyrir umhverfinu og náttúrunni í kringum Þingeyri.

Sirrý og Finni reka líka F &S Hópferðabíla og hægt er að skoða áætlun bílana á síðunni.

Vefsíðan er á Íslensku og ensku.

Skoða vidfjordinn.is

Sjá frétt á bb.is

Sólstafir Vestfjarða

Vefsíða Sólstafa Vestfjarða
Vefsíða Sólstafa Vestfjarða
Sólstafir Vestfjarða eru samtök í ætt við Stígamót og eru systursamtök þeirra. Mikil þörf var fyrir samtök af þessum toga hér á Vestfjörðum og hefur mikið verið leitað til þeirra eftir stofnun samtakana af báðum kynjum.

Var þetta styrktarverkefni Snerpu og var öll vinna ásamt aðgangi að Snerpill vefumjón gefin.

Skoða solstafir.is

Sjá frétt á bb.is

Fylkir.is Ferðaskrifstofa

Vefsíða Fylkir.is Ferðaskrifstofa
Vefsíða Fylkir.is Ferðaskrifstofa
Fylkir.is ferðaskrifstofa er er stærsta smá ferðaskrifstofan á landinu. Hún hefur einkunarorðin "Bestir í Danmörku" og sérhæfir sig í ferðalögum í Danmörku. Þarna má senda fyrirspurnir um bílaleigubíla og húsbíla og einnig er hægt að panta í gegnum vefinn.

Fylkir hefur haldið úti vefsíðu í 10 ár og er þetta þriðja kynslóð vefs Fylkir.is

Skoða fylkir.is

Sjá frétt á bb.is

Skrifstofuhótel

Vefsíða Skrifstofuhótels
Vefsíða Skrifstofuhótels
Skrifstofuhótel Ísafirði er fyrsta fyrirtæki sinnar tegundar á vestfjörðum. Þarna er sniðug rekstrareining á ferð, en þarna má leigja sér misstórar skrifstofur eða sali. Öll aðstaða er til fyrirmyndar og hefur engu verið til sparað við uppsettningu skrifstofuhótelsins.

Námskeiðahald er stór þáttur í starfseminni og mikil fjölbreytni í efni námskeiðanna.

Skoða skrifstofuhotel.is

Sjá frétt á bb.is

Slökkvilið Ísafjarðarbæjar

Vefsíða Slökkviliðs Ísafjarðarbæjar
Vefsíða Slökkviliðs Ísafjarðarbæjar
Skemmtileg og lifandi síða með miklum upplýsingum af starfi Slökkviliðs Ísafjaðarbæjar. Þorbjörn slökkviliðstjóri bloggar og eru strákarnir á stöðinni duglegir við að uppfæra fréttir.
Frábært myndaalbúm er að finna á síðunni þar sem einnig má finna eldri myndir af starfi slökkviliðsins.

Skoða vef slökkviliðsins

Sjá frétt á bb.is

Félagsmiðstöðvar Ísafjarðarbæjar

Vefsíða félagsmiðstöðva Ísafjarðarbæjar
Vefsíða félagsmiðstöðva Ísafjarðarbæjar
Félagsmiðstöðvar Ísafjarðarbæjar hafa allar komið sér undir einn hatt á vefnum. Eru þetta 4 félagsmiðstöðvar frá Ísafirði, Suðureyri, Flateyri og Þingeyri. Hver félagsmiðstöð hefur sér síðu og umsjónarmenn.

A.T.H: Síðan er ekki tilbúin, efni vantar.

Skoða felagsmidstod.is

Langi Mangi café

Vefsíða Langa Manga café
Vefsíða Langa Manga café
Langi Mangi café er skemmtileg kaffihús, staðsett í miðbæ Ísafjarðar. Á vefsíðu Langa Manga er að finna ýmsan fróðleik um hvað er að gerast á staðnum og heldur Guðmundur verti úti fréttum af starfseminni og einnig er þarna póstað úrslitum úr hinni geysivinsælu spurningakeppni, Drekktu betur.

Skoða langimangi.is

Borea Adventures

Vefsíða Skútusiglinga ehf
Vefsíða Skútusiglinga ehf
Borea Adventures er vaxandi fyrirtæki í ferðaþjónustu á Ísafirði. Rekur það seglskútuna Aurora, sem er 60 feta græja og fær í flestan sjó. Eigendur fyrirtækisins eru þeir Sigurður Jónsson og Rúnar Óli Karlsson.
Á síðunni má finna allar upplýsingar um ferðir í boði Borea Adventures og einnig halda þeir úti góðu bloggi sem er reglulega uppfært. Mjög skemmtilegt myndaalbúm er að finna á vefsíðunni og sumar myndirnar þarna eru alveg ótrúlegar.

Skoða boreaadventures.com

Súðavíkurhreppur

Vefsíða Súðavíkurhrepps
Vefsíða Súðavíkurhrepps
« 1 af 2 »
Sveitafélags vefsíða með öllu tilheyrandi. Ómar Már Jónsson sveitastjóri bað okkur um allsherjar endurhönnun á útliti vefsíðunnar og uppsettningu efnis. Var öllu efni skipt um þannig að allt sem tengsist stjórnsýslu er í einum greinilegum part síðunnar þannig að notandi sé fljótur að átta sig á stjórnsýsluparti síðunnar og þeim félagslega, því vefurinn skartar miklu afþreyingarefni í formi texta og mynda.

Skoða sudavik.is

Súðavíkurskóli fékk einnig nýja vefsíðu og er hún í sama formi og sveitafélagsvefurinn. Þar má sjá alla kennara, nemendur og fréttir og myndir frá starfi skólans.

Skoða vef Súðavíkurskóla

Ráðgjafa- og nuddsetrið ehf

Vefsíða Ráðgjafa setursins
Vefsíða Ráðgjafa setursins
Stefán Dan nuddari og ráðgjafi stendur fyrir rons.is. Stefán er nuddari og ráðgjafi á sviði áfengis, fíkniefna og fjölskylduvandamála. Á vefsíðu hans má finna allar upplýsingar um starfsemina ásamt verðum. Á vefsíðunni er hægt að panta tíma í alla þjónustu hans. Stefán leigir einnig út meðalstórann sal.

Skoða rons.is

Símaverið

Vefsíða Símaversins
Vefsíða Símaversins
Símaverið er þjónusta sem er ný af nálinni. Sérhæfa þeir sig í símsvörun fyrir fyrirtæki, stór sem smá. Þess má geta að Símaverið sér um alla símsvörun fyrir Snerpu með góðri raun. Á vefsíðu þeirra má finna allar upplýsingar um fyrirtækið, starfsfólk þess og þjónustu.

Skoða simaverid.is

Sjá frétt á bb.is

Vestfirskir Verktakar

Vefsíða Vestfirskra verktaka
Vefsíða Vestfirskra verktaka
Vestfirskir verktakar er vaxandi fyrirtæki á vestfjörðum. Forráðamönnum fyrirtækisins fanst vanta að vera sýnilegri á vefnum og var hafist handa við hönnun og uppsettningu vverk.is. Á vefsíðunni má finna allar upplýsingar um Vestfirska verktaka og þá þjónustu er þeir veita. Einnig má þar finna upplýsingar um húsnæði til sölu og leigu. Vefsíðan skartar skemmtilegu myndaalbúmi og reglulegum fréttum af fyrirtækinu.

Skoða vverk.is

BlaBla

Blabla.is er vefsíða fyrir játningar. Þarna getur þú sett inn þínar leyndustu hugsanir eða lesið það sem aðrir hafa sett inn. Síðunni hefur í alla staði verið vel tekið og eru ansi margar játningar settar inn á mánuði.

Vefur óvirkur í augnablikinu.