Háskólasetur Vestfjarða
Háskólasetrið var á höttunum eftir auðveldri vefumsjón fyrir sinn vef hsvest.is. Eftir skoðun á Snerpil var ákveðið að hefjast handa með vefdeild okkar. Á vefnum, sem er mjög efnismikill, má finna allar námsleiðir Háskólaseturins ásamt fjölmögu öðru frá starfsemi skólans.
Hér má lesa tilkynningu frá Háskólasetri og Snerpu:
"Háskólasetur Vestfjarða og Snerpa skrifa undir samstarfssamning
Tölvufyrirtækið Snerpa á Ísafirði hefur nú alfarið tekið að sér umsjón vefmála Háskólaseturs Vestfjarða. Peter Weiss, forstöðumaður Háskólaseturs, og Matthildur Helgadóttir, framkvæmdastjóri Snerpu, skrifuðu undir samning þar að lútandi nú í morgunn. Ágúst Atlason, margmiðlunarhönnuður hjá Snerpu, vinnur þessa dagana að hönnun nýrrar vefsíðu fyrir Háskólasetrið. Ákveðið var s.l. vor að fara út í algjöra endurskoðun á vefsíðu setursins þar sem nú fara í hönd miklar breytingar á starfseminni og því nauðsynlegt að endurhanna síðuna og laga hana að núverandi þörfum og varð vefumsjónarkerfið Snerpill fyrir valinu, en kerfið er hannað af Snerpumönnum og hefur reynst mjög vel."
Skoða hsvest.is