Vefsíður
Í dag keyra nokkur hundruð vefsíður á Snerpil Vefumsjónarkerfinu. Hér fyrir neðan má sjá nokkrar af þeim sem nýlega hafa verið teknar í gagnið.
Háskólasetur Vestfjarða
Háskólasetur Vestfjarða endurnýjaði vefsíðu sína snemma árs 2015. Nýja síðan keyrir á Snerpill vefumsjónarkerfinu frá Snerpu og hefur verið sérstaklega aðlöguð að smærri tækjum á borð við snjallsíma og spjaldtölvur.
Nýja vefsíðan leysir af hólmi eldri síðu sem hefur þjónað Háskólasetrinu dyggilega síðan árið 2007 en sú síða keyrði einnig á Snerpil.
Háskólasetur Vestfjarða er lítil stofnun á háskólastigi sem sett var á stofn árið 2005 en tók til starfa í janúar 2006. Við Háskólasetrið sjálft starfa að jafnaði um átta manns auk lausráðinna kennara. Í húsnæði Háskólaseturs starfa í heild yfir 50 manns við rannsóknir, kennslu og þjónustu hjá ýmsum stofnunum og fyrirtækjum.
Nýju vefsíðuna má skoða á www.uw.is
Verkalýðsfélag Vestfirðinga
Verkalýðsfélag Vestfirðinga endurnýjaði vefsíðu sína í júlí 2014. Útlitið á síðunni var allt tekið í gegn og snjallsímavætt auk þess sem veftré síðunnar var einfaldað.
Síðan keyrir að sjálfsögðu á Snerpil Vefumsjónarkerfinu frá Snerpu líkt og eldri síðan sem opnuð var árið 2008.
Sjá nánar á á verkvest.is
Borea Adventures
Ferðaþjónustufyrirtækið Borea Adventures tók í gagnið í maí 2014 nýja og endurbætta útgáfu af vefsíðunni sinni á boreaadventures.com. Nýja síðan keyrir á Snerpil vefumsjónarkerfinu líkt og sú gamla sem opnuð var árið 2006.
Nýi vefurinn var snjallsímavæddur frá grunni og eru allir ferðapakkarnir á honum tengdir bókunarvél bokun.is
Útlitið á nýju síðunni var hannað af grafíska snillingnum Ágústi Atlasyni sem einmitt starfaði hjá Snerpu til margra ára.
Sjá nánar á boreaadventures.com